Tuesday, July 10, 2007

Það er svo margt í mörgu í honum heiminum blessuðum atarna

Hafiði einhvern tímann heyrt um bréfalúgu í læstri hliðarlegu ??? Möhöhöhöhö......;)

Annars er ég búin að finna út úr því hvað 'primary subject of predication' er - af því að ég veit að þið eruð svo sjúk í að vita það - það er: Kjarni málsins (the essence of each thing ) ! Ég meina auðvitað ! Af hverju gat ég ekki fattað það fyrr !

Hér heldur svo bara áfram að vera sannkallað íslenskt sumarveður - rigning og skýjað með dass af roki þannig að ég kem til með að verða eins og lúbarinn snjóhvítur harðfiskur við heimkomu á klekann... Best að fara bara í svona sprey-tanklefa, hef heyrt að það geri góða hluti og sé svona líka gasalega 'natural' ......eða bara vera hvít.....held það bara.....já svei mér þá.......alla mína daga.....það sem manni dettur ekki hug......sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Svo vil ég endilega koma á framfæri hugvekju dagsins: Hvernig var hægt að vera námsmaður fyrir tíma Internetsins ? Já, nei ég bara spyr !

Yfir og út og alles

Brynhildur - djók ég meina Bubbi

Sunday, July 08, 2007

Í dag fór ég út í garð með basilikuna mína og leyði henni að tana sig aðeins í sólinni þar sem hún getur ekki séð sér fært um að skína á gluggann minn. Basilikan var bara mjög hress með þetta uppátæki og var orðin heltönuð þegar ég kom svo og sótti hana eftir 3 klukkustunda útiveru.
Annars steiki ég mig ekki í sólinni eins og eðlileg manneskja myndi máske gera á þessum annars síðustu og verstu rigningartímum, heldur felst steiking mín aðallega í því að vera að skrifa 20 blaðsíðna ritgerð um 'The Ultimate Subject of Predication' -sem er náttlega BARA hrezzzandi. Þökk sé Aristótelesi fyrir frumspeki sína. Amen.
Nú, svo er maður búinn að skrifa niður allsherjar megrunaráætlun sem mun koma í staðinn fyrir 'Keppnistan 2007', því sólin fór eitthvað í frí norður á bóginn og lætur lítið sem ekkert sjá sig hér á Meginlandinu um þessar mundir (nema í dag). Reyndar á ég eftir að hreinskrifa megrunarreglurnar og þess vegna teljast hliðarspor eins og 'vanillurjómabúðingur og súkkulaðikexpakki á einu kvöldi' ekki til brota á megrunarreglunum, því maður getur ekki brotið reglur sem ekki er búið að hreinskrifa, er það nokkuð ? Ég skelli mér kannski bara í að hreinskrifa þær einhvern tímann, ööhhh, bara, ...seinna.

Annars bara hhhhhrreeezzzzzzzzzzzzzzz

Ykkar einlægur,
Brynjólfur hvíti