Súrsuð kindakynfæri og heimferð
Hér í Berlín er heiður og fagur laugardagsmorgunn, Bubbi er tiltölulega nývaknaður og búinn að næra sinn kropp. Í kveld er stefnan tekin á þorrablót hér í borg - það get ég sko sagt ykkur að Bubbi iðar í skinninu eftir því að sjúga í sig hákarlinn og súru pungana - uuuhhhuuummmmmm,oooohhhhhhh.....sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana svo vægt sé til orða tekið. Annars er það í fréttum héðan af meginlandi Evrópu að Kóngurinn stefnir á opinbera heimsókn á klakann þann 16. mars. Þeir sem hafa áhuga á einhvers konar samskiptum við Kónginn á þessu mánaðartímabili sem hann hyggst dvelja á klakanum eru vinsamlegast beðnir að snúa sér niður í IÐNÓ en þar mun Hann víst dvelja nótt sem dag...
En nú er best að hætta þessu kjaftæði áður en ég drep ykkur nú úr leiðindum
Veriði nú stinn elskurnar mínar og ekki tapa gleðinni í lífsins ólgusjó !
Bleeezzzzzz,
Bubbi
En nú er best að hætta þessu kjaftæði áður en ég drep ykkur nú úr leiðindum
Veriði nú stinn elskurnar mínar og ekki tapa gleðinni í lífsins ólgusjó !
Bleeezzzzzz,
Bubbi

0 Comments:
Post a Comment
<< Home