Tuesday, May 01, 2007

Jæja, finnst máske einhverjum þarna úti kominn tími á smá slettu af þrasi hér á þessari minni síðu ? Maður er náttlega búinn að halda fólki í gífurlegri spennu - það eru eflaust mörg ykkar sem berið ekki barr ykkar eftir þessa löööngu bið. En nú geta allir sem betur fer á heilum sér tekið og farið að lifa eðlilegu lífi á ný. Bubbi er mættur á bloggið sitt ! já já.
eins og siður er á bloggsíðum þá er kannski best að byrja á því að telja upp svona facts um það sem á daga mína hefur drifið. Ég ætla meira að segja hafa þetta númerað - og hefst þá upptalningin:
1) Bubbi heimsótti klekann í 5 vikur þarna rétt eftir góu.
2) það var yndislegt og
3) gaman
4) svo yndislegt að
5) Bubbi fór að
6) gráta þegar hann kvaddi
7) mömmu sína og pabba
8) sem staðfestir endanlega
9) að
10) hann er dramadrottning
11) því verður ekki neitað lengur
12) nú er hann aftur kominn til
13) Berlínar

ég ætla ekki að segja meira til þess viðhalda spennunni...
þangað til næst elskurnar

Böðvar xxxx

P.S. fariði nú svo að drölla ykkur í heimsókn !!!