Monday, June 25, 2007

Heil og sæl hlustendur góðir á þessum bjarta en, tjah, kalda sunnudegi...

Heilir og sælir lesendur góðir bæði til sjávar og sveita !

Enn og aftur hefur pressan á gott Böbba-blogg orðið til þess að ég læt slag standa og sletti eins og nokkrum línum hér á öldur ljósvakans.

Hefur einhver lent í því að ryksuga takkana á tölvunni sinni ? Það get sko sagt ykkur að er einkar skemmtileg dægradvöl ! Spennan sem fylgir því að heyra sogrörið sjúga í sig hvern takkann á fætur öðrum og svo spennufallið eftir að maður hefur klætt sig í bleika gúmmara og kafað ofan í ryksugupokann og dregið upp takkana er engu líkt ! Endilega tjékkið á þéssu !
Svo er líka önnur iðja sem mikið hefur verið tekin hér - svokallaður randafluguleikur. Hann felst í því að tana (=verða brúnn) sig í hinum margvíslegustu flíkum, s.s. hlýralausum bolum, hlýrabolum, hlýrum sem ná yfir axlir, hlýrum sem ná yfir háls, breiðum hlýrum, mjóum hlýrum og allt þess á milli og útkoman svíkur engan: randaflugusyndrómið er ekki lengi að láta á sér standa ! Enginn er óbarinn biskup og er leiðin í áttina að keppnistani svo sannarlega þyrnum stráð. Er Randaflugu-Böðvar til marks um það.
Annars fer nú óðum að styttast í heimför á klekann svo að ég held ég geti sagt það með nokkurri vissu að þetta verði síðasta bloggið héðan af Meginlandinu - allaveganna ef ég þekki Böðvar rétt...
Hafiði það sem allra best elskurnar mínar og ekki gleyma að flokka ruslið

Ykkar einlægur
Böðvar/Bóbó/Bubbi/Björgólfur etc...