Tuesday, July 10, 2007

Það er svo margt í mörgu í honum heiminum blessuðum atarna

Hafiði einhvern tímann heyrt um bréfalúgu í læstri hliðarlegu ??? Möhöhöhöhö......;)

Annars er ég búin að finna út úr því hvað 'primary subject of predication' er - af því að ég veit að þið eruð svo sjúk í að vita það - það er: Kjarni málsins (the essence of each thing ) ! Ég meina auðvitað ! Af hverju gat ég ekki fattað það fyrr !

Hér heldur svo bara áfram að vera sannkallað íslenskt sumarveður - rigning og skýjað með dass af roki þannig að ég kem til með að verða eins og lúbarinn snjóhvítur harðfiskur við heimkomu á klekann... Best að fara bara í svona sprey-tanklefa, hef heyrt að það geri góða hluti og sé svona líka gasalega 'natural' ......eða bara vera hvít.....held það bara.....já svei mér þá.......alla mína daga.....það sem manni dettur ekki hug......sel það ekki dýrara en ég keypti það.

Svo vil ég endilega koma á framfæri hugvekju dagsins: Hvernig var hægt að vera námsmaður fyrir tíma Internetsins ? Já, nei ég bara spyr !

Yfir og út og alles

Brynhildur - djók ég meina Bubbi

1 Comments:

Blogger lkristin said...

Það er aldeilis keppnis-blogg hérna hjá þér Böðvar minn. Meira svona... klappliðið er mjög hrifið af svona dugnaði.
Hafðu engar áhyggjur af megruninni eða brúnkunni, þótt það sé sól á Íslandi þá er maður ekkert búin að löðra sig í sólinni neitt. Er alveg jafn hvít og þegar þú fórst og mun feitari.
Hlakka ofsa mikið til að sjá litla jarðaberið.
Luv Lubbi

4:02 AM  

Post a Comment

<< Home