Saturday, October 28, 2006

Bubbi intellektjúal

Sökum mikils þrýstings hefur Bubbi ákveðið að sletta á veraldarvefinn svona eins og nokkrum línum...

Haldiði að kjallinn sé ekki bara börjaður í þýskum háskóla hvorki meira né minna. Get ekki sagt að maður skilji meira en svona 30 % af því sem þar fer fram, en sówhatt, ég sit bara þægur í mínu sæti og stari á kennarann og kinka kolli þegar ég held að það eigi við og svona. Þetta kallast að vera intellektúal hér í þýska hlandi. Massa töff.
Þannig að þið megið í rauninni héðan í frá bara kalla mig Bubba intellektjúal. Það er sko viðurnefni með rentu.

En nú er svo komið að Bubbi er óskriffær í bili sökum óborganlegs ljóðaupplesturs á RUV/Gufunni. Ég er í menningarfóbíukasti. BBBllhheeessssiii Rás 1 !!! MMuuahahaa

Saturday, October 14, 2006

Bubbi tæger

Kveldið,

Mig langar bara að deila með ykkur þarna úti til sjávar og sveita, að EKKERT, ég endurtek EKKERT, virkar jafnvel á þynnku og Tiger Balm. Ég hvet alla til að fjárfesta í einni krukku af þessu kínverska undrameðali og finna tægerinn í sjálfum sér !

Ok bæ

Monday, October 09, 2006

Bubbi virkjar býfluguna sem býr innra með honum

Jú komiðið öll bæl og slessuð, þetta er Bubbi hér beint frá Berlín - nafla alheimsins og vöggu hins viti borna- og menningarmeðvitaða einstaklings, sem altso holdgervist í knæpu einni sem við köllum Áttuna og margir vilja meina að sé staðgengill hinnar íslensku knæpu Sirkuss og þykir massa töff. En nóg um það. Það sem ég ætlaði upphaflega að segja áður en ég missti mig í þessum barrokk litaða málæði mínu er nefninlega það að ég keypti mér sólgleraugu um helgina. Þau fann ég á markaði einum og eru þau mjög svo nýmóðins - beint frá 7. áratugnum og svo stór að það má með réttu segja að gleraugun beri mig en ekki ég þau, ef þið skiljið hvað ég á við. Það sem er einkar hentugt við þess konar solbrillur er að maður getur notað þau sem varnartæki. Eins og máske margir kannast við sem ein slík hafa borið á nefi sér, þá líður manni oft eins og maður hafi sveipað um sig hulinsfeldi um leið og maður setur þau upp. Maður verður sumsé ósýnilegur. Þetta er einmitt það sem ég átti við með samlíkingunni við varnartækið. Frá því solbrillurnar stóru snertu nef mitt er eins og allt fólkið sem áður var í sífellu að reyna að ota að mér hinum og þessum pésum og reyna að fá mig til þess að skrifa undir hitt og þetta hreinlega barasta sjái ekki Bubbann. Yndislegt hvað þarf lítið til þess að gleðja mann. Svo keypti ég nú reyndar líka snaga. Hann ber heitið Njörður.
Annars bara stinnur.
Blessi ykkur elskurnar mínar xxx