Nú eru afleiðingar félagslegrar einangrunar farnar að láta á sér kræla. Tók kastið á risa fiðrildi sem hafði villst inn til mín - en ég meina - það var HUGES og gaf frá sér hljóð sem myndi sóma TL-Líf þyrlu. Nú, ég altso var í sakleysi mínu að labba inn á baðherbergi mitt eins stundum gerist á bestu bæjum, kveiki ljósið og áður en ég vissi var eitthvað ferlíki að ráðast á mig. Ég fríkaði út og mætti aftur inná bað vopnuð kústskafti - ég meina það verður að vera mér til málsbóta að komandi fá Íslandi, þá bara þekkir maður ekki svona ferlíki ! En ég held reyndar að blessað fiðrildið hafi panikað meira en ég því það gjörsamlega trylltist upp úr öllu valdi og byrjaði ítrekað að reyna að fremja sjálfsmorð á veggjum baðherbergis míns. Þessi elska. Það hefur að öllum líkindum tekist, því þegar ég mætti svo aftur með glas og blaðsnepil til að smeygja undir var það bara gufað upp. En stóra spörningin er hins vegar: hvar er lík þess niðurkomið ??? Eða er það kannski bara bíðandi eftir mér í felum ??? Eitt er víst, mér á ekki eftir að koma dúr á auga í nótt. Eða "nótt" - öllu heldur í fyrramálið - þar sem mér hefur tekist það afrek að umturna sólarhringnum þannig að ég leggst ekki til hvílu fyrr en í fyrsta lagi klukkan 9 á morgnana og vakna svona þetta um 5-6 á kvöldin. Hefur þetta ekki orðið til þess að bæta þá félagslegu einangrun sem ég hef komið sjálfri mér í með endalausum ritgerðarskrifum og rugli. Reyndar átti ég nokkð interessant samræður við Sýrlendingana á kebabstað hér í götunni. Tókum við tal saman og leiddust umræður okkar auðvitað út í málefni íslamskra kvenna, sem er mér afar hugleikið þessa dagana. Þeir kumpánar fullyrtu það að kjör kvenna í Sýrlandi færu mjög batnandi með tilkomu nýs yfirbjóðara sem ég man ekki hvað heitir. Og ég alveg: "Já, frábært - þannig að konur eru þá væntanlega gjaldgengar t.a.m. í pólitík etc...?" Þeir: "Já, þær mega sko alveg taka þátt - en þær bara hafa ekkert til málanna að leggja, þannig að það er algjörlega tilgangslaust fyrir þær og okkur að hleypa konum inná þetta svið ?" Bubbi: "Já, einmitt. Og af hverju hafa þær ekkert til málanna að leggja ?" Kumpánar: "Nú, þær eru svo bissí að sinna heimilsstörfum og sjá um börnin og eiginmanninn og fara á markaðinn og svona, að það er bara ekki rúm fyrir meira [alsto í hausnum á þeim eða....?]."
Já, börnin góð. Sinn er siðurinn í hverju landi.
Yfir og út og allt um kring,
Brynhildur xxx
Já, börnin góð. Sinn er siðurinn í hverju landi.
Yfir og út og allt um kring,
Brynhildur xxx

1 Comments:
eg fekk massivt dejavu vid thennan lestur - atti nefnilega svipadan fund vid naeturfidrildi fyrir nokkrum arum - og tok kastid, oskrandi og aepandi med kust i hendinni ...
var einmitt lika i felagslegri einangrun sokum laerdoms.
alltaf gaman ...
Post a Comment
<< Home