Blóðsuguhrollvekja....
Sjaldan hefur verið jafnmikið tilefni til að bljúgga og einmitt nú á þessum síðustu og verstu innrásartímum inn á friðhelgi míns heimilis hér í Berlínarborg.
Eftirfarandi atvik átti sér stað kl: 2:00 að Meginlandstíma síðastliðna nótt.
Ung stúlka situr í mesta sakleysi að puða við ritgerð í tölvunni sinni, ljós eru kveikt og gluggar opnir upp á gátt, úti fyrir kolniðamyrkur.....allt í einu verður stúlkan vör við hreyfingu, lítur upp og hvað haldiði að fyrir augu hafi borið ???? LEÐURBLAKA !!! Já, ég sel það sko ekki dýrara en ég keypti það í þetta sinn. Ekki nóg með að þarna væri komin lifandi blóðsuga inn á mitt heimili, heldur lét hún öllum illum látum og þóttist ég kenna að hún væri blóðþyrst..... Stúlkan varð gripin mikilli skelfingu - öskraði smá og sá sér ekki annað fært en að flýja inn í aðrar vistarverur heimilis síns á bak við luktar dyr. Nú voru góð ráð dýr. Á meðan hún hugsaði um leið til þess að hrekja mannætuna á brott, fylgdist hún með ferlíkinu út um rúðu á hurðinni - virtist það einungis verða trylltara og trylltara með hverri mínútunni. Að lokum komst stúlkan að niðurstöðu: annað hvort myndi hún leggjast til hvílu í baðkerinu og bíða uns ferlíkið ógurlega gæfist upp og héldi sig á brott. Hins vegar að taka valkyrjuna á þetta og hervæðast sveipuð stærsta handklæðinu á heimilinu og með hárspreybrúsa í hönd (skv. ráðleggingum sérlegrar björgunarsveitar frá Íslandi sem var komin í málið). Þegar svo loksins átti að láta til skarar skríða nú, þá bara var blóðsugan horfin út í niðdimma nóttina !
Með hjartað enn í buxunum og svitadropa á augabrúnum flýtti stúlkan sér að loka öllum gluggum kirfilega en verður þá skyndilega vör við hreyfingu sem varð til þess að adrenalínið náði hámarki og lá við yfirliði.
Þarna var þá bara komið eitt lítið vesælt fiðrildi í staðinn....
Góðar stundir
Brynjólfur xxx