Wednesday, January 17, 2007

Ain't no sunshine when she's gone....

....eða réttara sagt he's gone, því ég er karlmaður, ef þið skylduð ekki vera búin að fatta það. Og ekki nóg með það, heldur er ég líka Kóngurinn. Svo það sé allt á hreinu.

Um daginn var Kóngurinn að tjilla einn með sjálfum sér. Skyndilega fór hann að verða eitthvað skrýtinn í hægra eyranu. Með eyrað í hönk fór hann engu að síður í ræktina og púlaði eins og Kóngi sæmir, enda ef hann hefur lært eitthvað hér í Deutschlandi, þá er það heragi mikill sem kallar ekki allt ömmu sína. Nú, svo fór að eyrað varð bara hellaðra og hellaðra og að lokum varð Kóngurinn að kalla á taxa og láta hann bruna með sig á hospital. Kóngurinn hélt gjörsamlega að höfuð sitt væri að springa út um eyrað á sér. Á hospitalinu var allt fullt af skrýtnu fólki, svokölluðum 'almúga'. Kóngurinn hélt náttlega að hann kæmist strax í læknishendur fram fyrir alla hina, en ó nei. Það er sko engin virðing borin fyrir kóngum hérna í Björlín. Össössöss. Þá var honum orðið svo gasalega illt að allt í einu varð hann bara aftur litli Bubbi sem grét fögrum tárum, með enga mömmu eða pabba nálægt sér. Í sársaukakasti miklu hringdi hann á annan taxabíl og lét hann bruna með sig í apótek, sem var ekki svo auðvelt, enda sunnudagskveld í hinni stóru Evrópu. Þar keypti hann einhverjar svona kvalastillandi pillur og eyrnadropa, sem fúnkeruðu bara ekki rass í bala á hið konunglega eyra. Þegar heim í höllina var komið, var Kóngurinn að niðurlútum kominn og langaði barasta nánast að kveðja þetta jarðlíf. Nú, eftir það varð atburðarásin ansi hröð, enda öll hirðin komin í málið hringjandi í paniki út um allar jarðir og á endanum sveipaði Kóngsi um hið konunglega hægra eyra hinni konunglegu lopahúfu (sko kórónu ef þið eruð ekki að fatta) og var brunað aftur á hospitalið. Þessi var samt miklu betri og Kóngurinn fékk að komast að strax. Og hvað haldiði ! Kóngsi bara búinn að næla sér í sýkingu í innra eyra sínu ! Nú voru sko góð ráð dýr og dælt var upp í hann sýklalyfjum og verkjalyfjum og nasaspreyi hvaðeina ! Ég skal sko segja ykkur það ! Allt getur gerst, meira segja fyrir Konunga !

Annars sakna ég ykkar allra rosalega mikið... en maður getur náttlega ekki bæði verið í Evrópu og einhverri skítaeyju út í reginhafi...altso

ykkar Böbbi Royjal xxxxx

1 Comments:

Blogger lkristin said...

Elsku góði Kóngur!

Mikið er hræðilegt að heyra af erfiðleikum þínum í fjarlægu landi. Our thoughts are with you in these troubled times!

Annars er það satt sem þú segir að sólin hefur nánast ekki skinið hérna síðan þú fórst og við Auddi erum að farast úr söknuði. Góði parturinn við það er að loksins erum við þá farnar að reyna að plana tripp til Kóngsins, eða allavegana reyna að koma okkur saman um dagsetningu á vísiteringunni. Hvenær myndi henta þér að fá okkur til þín?

Luv Laufar

7:59 AM  

Post a Comment

<< Home