Saturday, September 16, 2006

Bubbi býður í dinner

Já, loks þegar ský dró frá sólu og Bubbi gat á heilum sér tekið eftir mjög erfiða þynnku framanaf degi, ákvað hann að halda matarboð. Rómantískan dinner með kertaljósi og álfatónlist og reyðvíni. Auðvitað kom ekki annað til greina en að hann byði bestu vinkonu sinni um þessar mundir, Brynhildi, í matarboðið, en hún ku einnig vera búsett í Bjeurlín. Bubbi eldaði antrekót og hafði sem meðlæti kappabullur og gras með dissjon og ólífuolíu. Þetta bragðaðist prýðilega og sagði Brynhildur einmitt að sjaldan hefði hún bitið í jafnmeyra steik og einmitt þessa, og hefði hún þó í margt meyrt bitið um ævina.
Svo þurfti Brynhildur að fara eitthvað út á vit hinnar lokkandi nætur og því situr Bubbi einn eftir með allt öppveskið og engan til að hlæja með...

Blex klex klökkan er sechs
Yours4ever

Bubbi (Beubbi)

2 Comments:

Blogger Þórhildur Hagalín said...

frábaerlega gaman ad heyra frá thér! ég er og verd í thýskalandi áfram. thorhildur hjá gmail.com er mailid mitt og 0335 5008468 heimasíminn. líst mjög vel á hitting ;)

10:22 AM  
Blogger sunnasweet said...

jæjapæja...loksins komin með þig á kortið mitt í daglegan rúnt...gaman að fylgjast með þér Bibba/Böbbi!
Berlínarweekendtúr í nóv jafnvel á takteinunum...jibbíkóla!
Biz spåter meine kleine

9:58 PM  

Post a Comment

<< Home