Blessi Svíana frændur vora !
Jú komiði sææælll,
Finnst einhverjum óeðlilegt að vera búin að gera sér ferð í IKEA já kannski bara 5 sinnum á einum mánuði ? Ekki Bubba allaveganna, hann elskar IKEA - besta vin litla fátæka mannsins. Finn alltaf fyrir ótrúlega æsandi tilfinningu þegar ég sit í lestinni á leiðinni þangað og ég ætla nú ekki einu sinni að lýsa ástandinu á Bubbanum þegar hann er aksjúallí mættur á svæðið með kortið í annarri og körfuna í hinni. Blessi Svía.
En nóg um IKEA-Greddu Bubbans. Það sem hefur annars hleypt lífi í Berlínarborg er allnýstárleg iðja sem Bubbinn fann upp - Svokallað appelsínusafa/sódavatns - geysir, eins og hann kýs að kalla það. Það lýsir sér altso í því að maður tekur gúlsopa af þessum vökvum samanblönduðum, svo fær maður dass af hláturskasti sem endar svo með því að manni svelgist á og svo: allt í einu spýr maður út úr sér og yfir allar fínu IKEA mublurnar þessum líka fallega appelsínusafa-geysi ! Einstaklega uppörvandi og gefandi iðja. Líka mikið tekið sem samkvæmisleikur hér í Bjeurlín.
Annars vil ég bara ítreka það við vini og vandamenn að sökum stelisýki minnar er nú svo komið að heimili mitt er óðum að fyllast af eðalrúmum sem þið getið nýtt ykkur þegar þið komið hingað til Bjórlínar. Bara eitt rúm á mann takkskalduha ! Já já, Bubbi kann svo sannarlega að redda sér í útlandinu ;)
Yfir og út,
ykkar einlægur, Bubbi

2 Comments:
Guð blessi vanillukertin í Ikea
erum 3 tima fra berlin... eigum lika aukarum og buum i yndislegum bae ! semsagt, ef thig vantar fri fra berlin, lattu vita !
Post a Comment
<< Home